Prúðasti leikmaðurinn
Prúðasti leikmaðurinn
Magnús Jóhannesson hlaut verðlaun fyrir prúðasta leik, en verðlaunin voru gefin af ættingjum Guðmundar Jóhannssonar til minningar um Guðmund (Gumma Kauff eins og hann var stundum kallaður – kenndur við Kaupfélagið sem faðir hans stýrði), en Guðmundur lék með meistaraflokki ÍBÍ í kringum 1980 og lést langt fyrir aldur fram fyrir um áratug. Með Magnúsi á myndinni er yngri sonur Guðmundar heitins, hann Tryggvi og Guðmundur Ólafsson. Verðlaunin voru veitt í annað sinn í ár og eins og menn muna þá var Magni Blöndal fyrstur Ísfirðinga til að fá þessa tilnefningu. Báðir þessir heiðursmenn eru vel að viðurkenningunni komnir enda annáluð prúðmenni báðir tveir.