Besti Púkinn
Gunnar Níelsson, leikmaður Bakkapúka (gula liðið) tekur við Hafþórsbikarnum eftir að hafa verið valinn besti púkinn á mótinu. Til vinstri er Geir Garðarsson, bróðursonur Hafþórs Sigurgeirssonar, en ættingjar Hafþórs gáfu bikarinn til að heiðra minningu Hafþórs sem fórst af slysförum á sjó skömmu eftir að hann tók þátt í fyrsta púkamótinu árið 2005.