Stóra Púkamótið verður haldið í fjórða sinn á Ísafirði um helgina 11 og 12 júli. Mótið hefst föstudaginn 11 júlí kl 14 og eftir leiki dagsins verður Púka grill í skóginum á föstudaginn ef veður leyfir annars í Tjöruhúsinu.
Á laugardaginn hefst mótið kl 13:00 og eftir leiki dagsins verður Púka veisla í Stjórnsýsluhúsinu sem hefst kl 19:30 með verðlaunaafhendingum og skemmtunum. En og aftur verður mótsgjald á kostnaðarverði eða aðeins 9.000 kr fyrir knattspyrnu púka, innifalið í mótsgjaldi er búningur, vallargjöld, Púka grill og Púka veisla.
Þeir sem taka maka með í Púka grill og Púka veislu þurfa að borga 3.000 kr aukalega og af sjálfsögðu er þetta fyrir utan áfenga drykki sem verður í boði Wurth á Íslandi, bæði kvöldinn.