Stóra Púkamótið verður haldið í fimmta sinn á Ísafirði um helgina 10 og 11 júli. Mótið hefst föstudaginn 10 júlí kl 14 og eftir leiki dagsins verður Púka kvöld upp í skíðaskálanum í Tungudal á föstudagskvöld kl 20:00.
Á laugardaginn hefst mótið kl 13:00 og eftir leiki dagsins verður Púka veisla í Stjórnsýsluhúsinu sem hefst kl 19:30 með verðlaunaafhendingum og skemmtunum og eins og s.l. 4 ár og munu meistarakokkarnir þær Magga, Lúlu og Ella Ólafsdætur sjá um veitingarnar eins og þeim er einum lagið.
En og aftur verður mótsgjald á kostnaðarverði eða aðeins 10.000 kr fyrir knattspyrnu púka, innifalið í mótsgjaldi er búningur, vallargjöld, Púka grill og Púka veisla. Þeir sem taka maka með í Púka grill og Púka veislu þurfa aðeins að borga 5.000 kr aukalega og af sjálfsögðu er þetta fyrir utan áfenga drykki sem verður í boði Wurth á Íslandi, bæði kvöldinn.
Eins og fyrr segir þá er þetta fimmta árið sem Púkamótið er haldið á Ísafirði og er ætlunnin að halda upp á það á viðeigandi hátt, með einum eða öðrum hætti, eins og forsetinn mundi segja J