
Dagskrá Púkamótsins 2017.
Tólfta Púkamótið verður haldið föstudaginn og laugardaginn 23. og 24. júní í sól og sumaryl á Torfnesvelli á Ísafirði. Þar munu fyrrverandi knattspyrnuhetjur rifja upp gamla takta. Keppt verður á milli Dokku-, Króks-, Hlíðarvegs-, Eyrar-, Holtahverfis,- og Fjarðarpúka.
Púkamótið verður sett stundvíslega kl. 17 á föstudeginum á Torfnesvelli. Að setningu lokinni verður ÍBÍ liðinu, sem fór upp í efstu deild árið 1981, veitt sérstök viðurkenning. Þá verður í fyrsta sinn vítaspyrnukeppni á milli 40 til 50 ára, 50 til 60 ára og 60 +. Þar gefst mönnum gott tækifæri til þess að láta ljós sitt skína án þess að reyna um of á líkamshreysti sína.
Um kvöldið verður útgáfuhóf í tilefni af útkomu bókar Sigurðar Péturssonar sagnfræðings um Ísfirska knattspyrnu. Hófið hefst kl. 19.30 í Húsinu. Þar geta menn gætt sér á hamborgurum og bjór til þess að skola þeim niður.
Leikir Púkamótsins hefjast síðan á Torfnesvelli laugardaginn 24.júní kl.13:30 þar sem knattspyrnukempur munu gleðja augu og eyru viðstaddra. Um kvöldið verður síðan gala-dinner og dans langt fram á nótt.
Að vanda verður mótsgjaldi stillt mjög í hóf og er verðið að þessu sinni aðeins 14.000 krónur fyrir hvern knattspyrnupúka. Innifalið í því gjaldi er vallargjald, hamborgaraveisla í útgáfuhófi ásamt gala-dinner og dansi. Þeir sem taka maka með sér í veisluhöldin þurfa að greiða aukalega 4.000 krónur. Drykki greiða menn sérstaklega fyrir.
Skráning á Púkamótið er hafin á www.pukamot.is
Þá geta menn einnig gerst áskrifendur af hinni veglegu bók Sigurðar Péturssonar um sögu Ísfirskrar knattspyrnu og þannig tryggt sér eintak á sérstöku vildarverði.
Stjórn Púkamótsins vill þakka öllum velunnurum mótsins undanfarin ár fyrir frábært framlag þeirra, sem hefur verið nýtt til að styðja við æsku Ísafjarðarbæjar.